|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ fimmtudagur, ágúst 03, 2006 ]:.
jæææææææja... vá vá vá margt og mikið búið að gerast! Tommi brósi eignaðist yndislega fallega stelpu þann 26 júl síðastliðinn og geðveik kúl kt sem að prinsessan fékk 26.07.06-2250 og skemmtilegur viðauki er síðustu stafirnir... 22.05 sem er einmitt afmælisdagur Tómasar! ég og mamma fórum síðan laugardaginn eftir í heimsókn og ég fékk að halda á þessari brjálæðislega sætu sætu sætu stelpu (sem ég ég veit btw ekki enn hvað heitir!!! urg) get ekki beðið eftir skírn svo ég geti farið að kalla hana eitthvað annað en "litla dós"... TIL HAMINGJU TÓMAS OG BERGLIND!!! ekki nóg með að eignast nýja frænku þennan dag þá fengu foreldrar okkar bjarka að hittast og við fórum öll saman út að borða á hereford og svei mér þá þetta gekk bara eins og í sögu fannst mér! þeim kom bara mjög vel saman og við áttum frábæra kvöldstund án allra vandræðalegra þagna, óþarfa commenta eða öðru sem ég var pínu búin að "kvíða" fyir ;) helgin gekk svona sæmilega fyrir sig, bara vinna og svona... SVO kom mánudagurinn - óvissuferð!!! - alveg bara drulluskemmtileg líka (þó ég segi sjálf frá) við hittumst öll á misjafnlega réttum tíma í kringum tólf og svo var brunað að hvítá þar sem að við fórum í RIVER RAFTING!!! weeeeee!!!! þegar við vorum búin að sigla, stökkva, svetta og þrykkja öllum útí vorum við algjörlega búin á því og þá beið okkar snilldar grillveisla með bjór og öllu meðfylgjandi (geðveikt gott!) og svo var okkur hent upp í bíl þar sem biðu okkar þrír kassar af bjór sem fuku næstum allir (merkilegt hvað það kemst mikill bjór ofan í minna af fólki)!!! Bóbó var ekki vinsæll í eden þessa ferðina og gaf grey þórkötlu ekki gjöfina né brandarann sem hún var að vonast eftir :D þá rúntum við heim til okkar bjarka og chilluðum í smá stund þar til ég var gjörsamlega búin og mér skilst að við höfum "hent" fólki liggur við út :) svo við enduðum kvöldið á pirates of the carribean-snilldar mynd!!! og þá er komið að hápunkti þessa blogs! ÉG ER KOMIN INN Í KENNARAHÁSKÓLANN!!!!!! fékk að frétta það í dag að bréfið sem ég átti að fá sem að bauð mig velkomna í skólann TÝNDIST og þess vegna er ég búin að vera að bíða með kökk í hálsinum eftir að helvítis staffið kæmi úr sumarfríi til að segja mér að ég SÉ KOMIN INN!!! weeeee!!!! ég fékk að vera algjör miðpunktur í dag, mamma, pabbi og amma rosa stolt að litla stelpan þeirra sé loksins að gera eitthvað gáfulegt við lífið ;) annars var ég bara að chilla (með STÓRUM stöfum) í dag, rölti til bjarka til að segja honum góðu fréttirnar, fór svo í eymundsson, keypti mér terry pratchet og settist á austurvöll að lesa... já og svo hitti ég Bergrúnu og Sirrý áðan, vááá hvað það er langt síðan ég sá þær síðast!!! var bara þokkalega gaman, náðum að catcha up og svona :) þyrfti eiginlega að fara að drulla mér til að hafa meira samband, þetta eru ekki stelpur sem ég vil missa allt contact við... ok ég er búin að rambla on for long enough þannig að ég ætla að fara að vorkenna kærastanum mínum fyrir að hafa unnið svona mikið í dag á meðan ég gerði akkúrat ekki neitt nema að slappa af! luv to yall!!! bless, Tinna fréttahaukur a RED production by ME!!! at fimmtudagur, ágúst 03, 2006 0 comments |