|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ sunnudagur, júní 25, 2006 ]:.
illt illt ILLT!!! mér er illt alls staðar, mér er illt í hálsinum, mér er illt í fótunum, mér er illt í handleggjunum, mér er ill í hausnum og mér er meira að segja ill í PUTTUNUM??? hvers vegna þessi svakalega lemstrun? well pabbi ákvað að bjóða okkur systkinunum og bjarka á bátinn í gær og eins og sannur góður faðir hætti hann ekki fyrr en við vorum öll búin að hendast af blöðrunni með tilheyrandi hringjum í loftinu og splassi... neeeema hvað, ég ákveð auðvitað (eins og mér er líkt) að taka svingið aðeins lengra og hreinlega rústa á mér hálsinum í fyrstu ferð.. þarna ligg ég sumsé í vatninu og þakka gvöðe fyrir það að búningurinn heldur mér á floti því að ég get það andskotakornið ekki! jæja eftir að hafa gefið pabba smá sjokk og samviskubit ;) klifra ég aftur upp í bátinn og fjörið heldur áfram :D bjarki stóð sig eins og hetja og ég var farin að halda að pabba tækist ekkert að henda honum af.. ok ok reyndar um leið og ég sagði við hann "hva er þér ekkert að takast þetta pabbi minn?" þrykkir hann í u-beygju og bjarki flýgur *hehe* þá var hann held ég bara að vera næs við bjarka og ákvað svo að vígja hann almennilega inn í fjölskylduna með því að drekkja honum í hafravatni (einnig með tilheyrandi skoppi og skvampi). eftir þriggja tíma fjör og gaman þurftum við að fara þar sem bjarki þurfti að fara að vinna og ég þurfti að fara að hafa mig fína fyrir útskriftina hennar karenar (TIL HAMINGJU KRÚSAN MÍN!!!) Reyndar verð ég að viðurkenna að eins og mér leið eftir þessa bátsferð gat ég ekki hugsað mér að fara að pússa mig eitthvað upp og gera mig "sæta" - "sæt" var ekki alveg í orðaforðanum mínum þessa stundina .. en mér skilst að mér hafi tekist þetta allt saman nokkuð vel :) ok ok, nóg komið af væli, þessi útskriftarveisla var geðveikt skemmtileg og ég varð yfir mig ástfangin af emblu (hundinum hennar karenar) en svo var kominn tími til að fara að kveðja, enda komnir einir 10-15 mojitos ofan í mann. jah, ekki get ég svo sagt neitt margt um það sem gerðist í bænum því að við tróðum okkur í röðina á óliver (ÉG HATA ÞENNAN HELV STAÐ!!) og lentum hjá hundleiðinlegum þjóðverjum, þurftum að bíða í hálftíma og svo loksins þegar við komumst inn var svo troðið að ekki nokkur maður gat hreift sig þarna.. svoooo að ég yfirgaf svæðið bara. vá hvað ég var samt hamingjusöm með það í morgun þegar ég vaknaði, því ég gæti ekki séð fyrir mér hvernig ég hefði verið ef ég hefði vakað mikið lengur með þetta áfengismagn í mér *hihi* jæja nóg komið í bili, ég þarf að fara að vinna, síðasta daginn í VIKU því að KRAKKARNIR KOMA Á MORGUN!!! jeij!!! bless, Tinna mojito-maker a RED production by ME!!! at sunnudagur, júní 25, 2006 0 comments |