|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ fimmtudagur, maí 04, 2006 ]:.
öskrað í koddann fyndið hvað lítil hrúga af fjöðrum og efni getur virkað sem besti sálfræðingur í heimi, allar áhyggjur, allur pirringur og öll reiði heimsins geta blossað út og fengið að vera til í friði í smá stund, einmitt þá stund sem maður þarf til að verða andlega heill aftur... það sem ég hef oft velt fyrir mér er, af hverju þarf maður þetta? ef maður lifði í fullkomnum heimi þá mundi maður einfaldlega henda þessu út eins og nokkrum sinnum í viku og líða alltaf vel. en er þá ekki spurning hvort að maður yrði ekki kallaður geðsjúklingur? væri ekki litið á mann sem brjálaða manneskju? yrði maður litinn hornauga af samfélaginu? ef þetta er það sem þarf til að láta manni líða betur, af hverju er þetta þá ekki eðlilegur hlutur? dagsdaglegur gjörningur eins og að fara út með ruslið eða bursta í sér tennurnar? einkennilegt. well nóg um það, mér er illt í löppunum og langar rosa mikið heim í sturtu að chilla. bless, Tinna spurningamerki. a RED production by ME!!! at fimmtudagur, maí 04, 2006 0 comments |