|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ föstudagur, maí 05, 2006 ]:.
hmm og jámm ég var að pæla, er ég ill manneskja ef ég sendi svona væmnisemail ekki áfram? það kemur svo óeðlilega oft einhverskonar email um manneskjur í vondum málum útí heimi og ég skal viðurkenna að mörg þessara mála eru djöfull hearttouching og allt það, en ég hreinlega nenni ekki að lesa þetta, hvað þá að senda það áfram... er ég vond??? ég meina ef ég sé einhvern hérna sem þarf hjálp þá er ég alltaf tilbúin að hjálpa, ég skal alltaf vera til staðar ef einhvern vantar öxl (já ok ef ég er ekki að vinna-sem virðist vera alltaf)... en hei, af hverju finnst mér ég þá þurfa að afsaka mig??? ég hef alveg gert góða hluti og mundi persónulega ekki telja mig sem slæma manneskju en af hverju -AF HVERJU- stendur þá alltaf í þessum helvítis emailum "ef þú sendir þetta ekki áfram sýnir þú fram á að þú hefur ekkert hjarta!!!" ég meina, ég er alls ekki að meina að ég sé á móti svona, fólk má alveg gera þetta í þeirri trú að það sé að hjálpa einhverjum john doe útí heimi en ég hef bara ýmislegt annað við tímann að gera... eins og þarna um daginn fengum við á hereford email um að elskaðasta barn alls bloggheimis væri að verða eins árs og að foreldrar þeirra (sem ég lít persónulega á sem hetjur og ekkert annað) væru að koma að borða hjá okkur... svo að ég ákvað bara að starta herferð og fékk því fram að þau fengju allt frítt og skyldu sko heldur betur eiga gott kvöld hjá okkur með rauðvíni og fleiru (vona að flaskan sem ég valdi hafi verið góð +hehe+). ég vona að þeim hafi liðið vel þessa kvöldstund og svoleiðis lít ég persónulega miklu frekar á sem góðverk heldur en að að senda áfram eitthvað fjandans email... ok sorry, orðin pínulítið æst hérna :D anyways, svo allir viti, ef ég fæ forward email, ég sendi þau ekki áfram og ef það þýðir að ég sé hjartalaus og vond manneskja þá verð ég bara að taka það á mig! og ég er hætt og farin að vinna :) bless, Tinna tilvistarkreppa a RED production by ME!!! at föstudagur, maí 05, 2006 1 comments |