|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ miðvikudagur, mars 15, 2006 ]:.
Rotvarnarefni óskast!! ef ég þarf að hangar hérna öllu lengur fer alvarleg rotnun eða að minnsta kosti myglun í gang! mér leiðist svo mikið að rasskinnarnar á mér eru alvarlega farnar að íhuga að byrja framleiðslu á rótum svo að ég detti nú ekki af stólnum vegna gríðarlegra leiðinda!! úff EKKI kúl!!! annars svona vegna gíkantísks leiða fór ég að pæla.. (úff ekki gott það).. þegar maður elskar manneskju svona ótrúlega mikið þá mundi ég segja að það ætti að vera eðlilegt að verða afbrýðissamur, það á að vera nokkuð mikið norm að hugsa af og til hvort að þessi tiltekna manneskja muni nokkuð finna einhvern betri eða jafnvel hvort að maður nái að krafla með tærnar þar sem aðrar og jafnvel mikilvægari manneskjur eru með hælana.. well einhverra hluta vegna læt ég persónulega þetta ekki pirra mig, ég hef ákveðið að lifa lífinu eins ljúfu og það er einfaldlega. það á hins vegar því miður ekki við um alla aðra og mér þykir það allt of sárt að heyra svoleiðis, það er spurning hvort maður sé þá ekki endilega nógu duglegur að láta manneskjuna vita hversu mikilvæg hún er, hversu mikið maður elskar hana og að lífið hafi aldrei verið ljúfara en það er í dag! þetta er tribute til bjarka... ÉG ELSKA ÞIG BJARKI OG MÉR HEFUR ALDREI LIÐIÐ EINS VEL OG MÉR LÍÐUR Í DAG, ég hef aldrei fundið til þessara tilfinninga sem skella á mig einungis við að horfa á þig og ég er handviss að þú ert maðurinn sem mér var ætlað að elska, alltaf!!! jæja nóg komið í dag, ég ætla að fara að koma mér á kaffi vín að fá mér eitthvað að borða! bless, Tinna brosmilda. a RED production by ME!!! at miðvikudagur, mars 15, 2006 0 comments |