|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ þriðjudagur, febrúar 21, 2006 ]:.
fjölhæfasti kærasti allra tíma djöfull er ég montin núna, ég var eitthvað ónýt í gær og lá bara hálfsofandi þegar bjarki kom heim þannig að hann byrjaði á því að vera super duper góður við mig og svo datt mér í hug að fyrst að við værum ekki að fara að gera neitt spes þá myndi hann KLIPPA mig! helduru að strákurinn hafi ekki bara tekið skæri í hönd (reyndar frekar skjálfandi hönd) og byrjað að klippa "þú lofar að drepa mig ekki" hehe hvað er þetta, það er ekki eins og ég hafi gert þetta eitthvað betur í gegnum tíðina þannig að hárið flaug og baðkarið fylltist meira og meira.. svo kíkti ég í spegil og... HALDIÐI AÐ HANN HAFI EKKI BARA GERT MIG GEÐVEIKT FÍNA!!! þannig að bjarki er ekki bara snilldar kokkur, yndilegur kærasti, frábær vinur, æðislegur og bestur heldur kann hann líka að klippa núna :D vá hvað ég er stolt af honum!!! well þá er voða lítið eftir að segja, er bara að bíða eftir að íris komi og sæki mig svo að við getum farið í eitthvað top secret verkefni sem að ég fæ ekkert að vita um ... en þangað til, kveð ég bara að sinni.. bless, Tinna kærasta edward scissorhands :D a RED production by ME!!! at þriðjudagur, febrúar 21, 2006 0 comments |