|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ miðvikudagur, janúar 25, 2006 ]:.
vá vá og aftur vá! það er ekkert lítið sem er að gerast í heiminum þessa dagana, ég var að lesa ýmis blogg (sem útskýrir hversu áliðið það er þegar ég sit hér og skrifa) og vitið þið hvað, ég er bara í sjokki! ætli það sé árstíðin sem að veldur þessu? ég meina ég hef oft lesið og heyrt um að janúar sé erfiðasti mánuðurinn í lífi fólks, bæði líkamlega; jólin búin og bumban ekkert að láta á sjá, andlega; jú jú það er alltaf dimmt og skamdegisþunglindið lætur á sér kræla og félagslega; allir virðast vera annað hvort lónerar, í ástarsorg eða einfaldlega sú staðreynd að það er svo langt í næstu hátíð. þetta fær á mann og ég vil bara svona henda því í loftið (án þess að hljóma eins og oprah) að alltaf eigum við eftir að ganga í gegnum eitthvað og það er einmitt það sem að gerir þig að þeim sem þú ert, þannig að í staðin fyrir að henda sér á koddann og gráta eða setjast niður sem þrjóskur krakki, af hverju ekki bara að vera sáttur við það að ef við hefðum ekki gengið í gegnum allt það sem við höfum gert þá værum við ekki þessar YNDISLEGU manneskjur sem við erum í dag!! hehe, ég veit þetta hljómar alveg ógeðslega en mér er bara eiginlega alveg sama, það virðist vanta einhvern ljósastaur þarna úti og í dag ætla ég að vera hann :D the overly optimistic one... p.s. ég er búin að sjá þetta á nokkrum stöðum og nú langar mig að spurja ykkur... 1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? bless og allir að elskast ;) a RED production by ME!!! at miðvikudagur, janúar 25, 2006 5 comments |