|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ föstudagur, janúar 27, 2006 ]:.
Já lífið gengur sinn vanagang, ég er að drepast úr túrverkjum og við bjarki erum að fara yfir um vegna íbúðarvesens.. það var eiginlega búið að lofa okkur íbúð en það ætlar auðsjáanlega eitthvað að dragast, ekki sniðugt! Við erum að bíða bara og bíða og ekkert gerist, ef satt skal segja, þá er ég orðin frekar stressuð. Ef hún hringir ekki fyrir helgi þá þýðir það að við getum ekki flutt inn fyrr en eftir eina og hálfa viku, seeem að þýðir að við verðum á götunni í einhverja daga og ég veit ekki hvert við getum farið, ég meina ég veit að ef að eitthvað brjálað vesen er þá megum við pottþétt vera hjá mömmu en ég vil helst ekki vera að troðast inn á hana og svona... æj mig langar bara svo mikið að kaupa mér íbúð, ok so what þó að það þýði að ég sé að taka 100 prósent lán og sé að borga 80 fallt af íbúðinni, þá get ég alveg eins gert það eins og að vera að borga leigu sem að fer ekki í neitt í mörg ár eins og ég er búin að vera að gera... meeeen, ég mundi gera allt til að geta keypt, ég bara veit að pabbi er pottþétt ekki tilbúinn til að vera ábyrgðarmaður og mamma ekki heldur! Æj skil það svossum mjög vel, þau eru ekki beint búin að lenda allt of vel í því, fólk að svíkja þau og nota... vil ekki vera svoleiðis en það er bara því miður ekki hægt að kaupa íbúð án þess!! Andskotinn! Jæja það þýðir ekki að væla endalaust, eitthvað verður að gerast og ef það þýðir að ég þurfi að leigja næstu árin þá verður bara að hafa það. Andskotinn! Já andskotinn enn og aftur, ég er ekki sátt við þetta allt saman...
Shit hvað tinna er ánægð í dag! bless a RED production by ME!!! at föstudagur, janúar 27, 2006 1 comments |