|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ þriðjudagur, nóvember 08, 2005 ]:.
jamm og já ég var að fá skammir í gær... ég er svo að drepast úr skoti og ég MÁ EKKI SÝNA ÞAÐ!!! já ég veit það selur! það er nefnilega svo ógeðslega týpískt, ég aulast í þetta ástarfley, finn ekkert við hæfi og svo tveim dögum eftir heimkomu kynnist ég þessum líka drop dead gorgeous gaur sem að ég get ekki sleppt af hendinni lengur en hálfa sekúntu! hmm, ekki auðvelt! annars er ég bara búin að vera að vinna eins og vitleysingur (eins og vanalega) og hef engan tíma fyrir neitt ... jú ok nema Mr sætann! djúphugsun dagsins: af hverju ætli sumir vilji ekki opna sig eins mikið og aðrir? eða þúst ekki opna sig kannski, meira svona segja frá.. ég persónulega veit ekkert skemmtilegra en að segja skemmtilegar og leiðinlegar sögur af mér og heyra skemmtilegar og leiðinlegar sögur frá öðrum... það kannast jú allir við þetta, að skiptast á sögum þið vitið. "þú þarft að slaka meira á og ég skal hjálpa þér" "svo fór perlan bara lengst upp í haus.." "endaði upp á þaki dansandi" "hrundi í skurðinn ofan í hrossaskít" já allavega you get my point, eða allavega svona nokkurn vegin. ég fór allavega mikið að pæla í þessu um daginn, ætli þetta sé spurning um traust eða er þetta spurning um feiminleika, leti, óvilja eða hvað??? mér finnst ég sjaldan kynnast fólki jafn vel og þegar ég fæ að heyra eitthvað svona og mér finnst bara eiginlega sjálfsagður hlutur að ég geri það sama á móti - þúst svona jollígúd fílíngur :) ok ég er allavega hætt í bili, farin og bless a RED production by ME!!! at þriðjudagur, nóvember 08, 2005 5 comments |