|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ þriðjudagur, ágúst 30, 2005 ]:.
Tinna á sér takmark!! já þessi bloggur verður djúpur, ég er djúp í dag... ég er búin að finna mitt takmark í lífinu, ef takmark má kalla... einhvern daginn ætla ég að verða svo vitleysislega brjálæðislega yfir mig ástfangin, eiga lítið hús í grjótaþorpinu með hvítri girðingu, labrador og tvo krakka! veistu, í dag var ég umkringd ástfangnu fólki, kannski er það þessi árstími eða einfaldlega sú staðreynd að í dag er einkar mikið til af heppnu fólki. ég kom heim úr vinnunni, knúsaði köttinn minn, vafði mig inn í skærrauða flísteppið mitt og sökkti mér í súrar ástarþvælumyndir og ég fór að spurja mig, hvernig fer fólk að þessu, hvernig veit það hver er hin(n) eini/eina sanna/sanni er? af hverju lenda sumir í þessu en aðrir ekki? af hverju ætti maður að vera svo andskoti heppinn að finna þessa einu sönnu mannsveskju í þessum risastóra heimi? og síðast en ekki síst... HVAÐ er ást??? það skrifa svo margir um þetta fyrirbæri, það syngja svo margir um þetta, jafnvel öskra þannig að einhversstaðar hlýtur að vera smá sannleikskorn í þessu? eða hvað? já kæri heimur, mér skal takast þetta einhvern daginn!!! eeen allavega, á meðan það gengur ekki þá ætla ég bara að halda áfram að vera þessi útúrsýrði heilasellufjöldamorðingi og geðsjúklingur sem mér er í blóð borið að vera :) ég meina, dont take me the wrong way, ég elska það! og er alls ekki tilbúin að skipta á því og neinu öðru.. það er bara eitthvað við þessu hugsun um "ást" sem að er alveg ofboðslega girnilegt, veit ekki hvað það er? getur einhver sagt mér það? well, ekki mikið sem hægt er að gera við því :) sýruhaus kveður.... p.s. já það eru komnar smá nýjar myndir frá þýskalandi, ég er ennþá að bíða eftir að nenna að setja inn myndir af tattooinu mínu ;) a RED production by ME!!! at þriðjudagur, ágúst 30, 2005 2 comments |