|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ miðvikudagur, janúar 12, 2005 ]:.
FLUTNINGAR!!! jæja þá erum við lutz búin að finna brillíant íbúð! djöfulls snilld, þetta er íbúð sem ég hef þegar búið í og hún er stór og og og æðisleg! Mýmisveg 6! var reyndar frekar einkennilegt, við ákváðum bara svona að ath hvernig markaðurinn stæði og skráðum okkur á leigulistann, klukkutíma síðar...vorum við búin að skoða, tala karlinn til svo hann mundi ekki leigja einhverjum öðrum hana, ákveðinn tími til að skrifa undir samning og svo bara við komin með íbúð! og það ekki bara hvaða íbúð sem er, hún er 75fm með 20fm svölum!!! jíííj, lítur meiriháttar út og bara wow! flytjum svo bara núna á laugardaginn :) þeir sem eru í mögulegu ástandi til að hjálpa, plís komið, það er einhvernvegin hver einasta manneskja upptekin við eitthvað? svo eftir á verður bjór á svæðinu :D annars ætlum við bara að taka allan laugardaginn í þetta og taka svo til á sunnudaginn, helgina eftir verður svo eflaust innflutningspartý. jæja ég ætla að halda áfram að pakka :) a RED production by ME!!! at miðvikudagur, janúar 12, 2005 0 comments |