|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ þriðjudagur, nóvember 02, 2004 ]:.
halloween djammið var massíft stuð, það var drukkið, málað, hneykslast (aðallega vegfarendur laugavegarins) og dansað (eins mikið og hægt er á TÍU sentimetra hælum) svo reyndar gerðist ég lúði og ákvað að þykja ofsalega vænt um lappirnar mínar og ég fór snemma heim...ég var fekkin bólgin á táberginu í tvo daga á eftir!!! úff jæja svo er ég enn að bíða eftir að haft verði samband við mig frá la senza.. djísus ég er gjörsamlega að fara yfir um! ég var sko, fyrir þá sem ekki vita, að vinna þarna á laugardaginn í svona prufu... well mér fannst mér ganga geðveikt vel, náði ágætis sambandi við starfstúlkur mínar og bara jibbíjei... já en það er auðsjáanlega RANGT!!!! áður en ég fer heim segir aðalstelpan þarna á vaktinni bara "já og svo höfum við pottþétt samband við þig á mánudaginn"... eins og flestir sjá þá er ég ekki að skrifa á MÁNUDEGI!!! ég beið og beið og hringdi í gær, ekkert. og enn þann dag í dag bíð ég og bíð ég og var að hringja aftur... þóra "skrapp" aðeins, shit og fokk ég er að fara á taugum!! mig langar geðveikt í þessa vinnu (and that hasn't happent for a looong time) o jæja, þýðir ekki að væla, ... JÚ VÍST!!!... hrmpf... ekkert fleira spennandi búið að gerast svossum og svona undir lokin ætla ég að stela hugmynd... "hver les bloggið mitt??" pls commentið þið sem gerið það, svo að ég geti vitað :) jæja, þá er ég out, ætla að bíða í aumkunn minni þangað til að þóra kemur aftur frá skreppinu..blz a RED production by ME!!! at þriðjudagur, nóvember 02, 2004 2 comments |