|
|
|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
|
.:[ miðvikudagur, ágúst 04, 2004 ]:.
Verslunarmannahelgin var MASSÍV!! byrjað var á föstudagsmorgunn að hrúga eins og tveim tonnum af farangri í bílinn og svo í gám, þá var tekið við að æla.. já mikið rétt, ég held að um það bil 2% farþegar hafi EKKI ælt, og það var þá kannski skipstjórinn. allavega, þá var komið sér fyrir í dalnum, tjaldað ÞRISVAR, einhvernvegin tókst okkur bara ekki að koma helvítis tjaldinu rétt upp, okkur tókst meira að segja að setja það á hvolf einhvernvegin (eða þúst in side out). ok hvað kom næst, jú auðvitað DRYKKKKKJJJJJAAAAAAA!!!hmm föstudagskvöldið var ansi magnað verð ég að segja, þegar mér var búið að takast að drepast örugglega tvisvar þrisvar fór ég að slást við geira *batsch* ég held að hann hafi brotið á mér bakið því að það næsta sem ég man (hálftíma seinna) var að það var verið að bera mig á sjúkrabörum..."hver á að stjórna" var víst aðal lína "sjúkra"liðanna því þeir vissu nákvæmlega ekki shit hvað þeir voru að gera!!! allavega, eftir mikið ýt og væl og skoð reifst ég við lækninn um að fá að fara heim í tjald´, því ég ætlaði sko ekki að eyða helvítis nóttinni þarna! ok daginn eftir fór ég til hans til að leyfa honum að tékka á mér, ég fékk þetta líka geeeðveika dóp og var bara kúl á því það sem eftir var helgarinnar.. sem betur fer voru engir dóphundar í mínu tjaldi ;) ok svo klukkan hálf fjögur byrjuðu FÁRÁNLEIKARNIR!!! shit hvað það var gaman, við vorum í boði becks að drekka átta kassa af bjór og leika okkur í brennó, snú snú, glímu og fleiru á PLASTDÚK SOAKING Í SÁPUVATNI!!! shit hvað það var sick gaman :D svo sofnuðum við reyndar (eða drápumst, any way folks wana see it) og vöknuðum hress og góð til að halda áfram að djamma um átta leitið, reyndar vaknaði ég ekki fyrr en tíu því að ég var svo uppdópuð held ég að það var ekki sjens að vekja mig... dunno.. FYLLERÍÍÍ já svo kom hinn eeeelskulegi sunnudagur, dagur brekkusöngsins, áfram var drukkið og svo klætt sig upp til að gera sig tilbúin í drullusvað lífs míns, VÁ HVAÐ ÞAÐ ER ERFITT AÐ KLIFRA UPP HELVÍTIS BREKKUNA!!! ég var samt rosa stolt af mér, mér tókst að detta bara svona 36 sinnum á andlitið :D *mont* ehem.. já úhh svo átti að BERJA mig!!! það var einhver gella sem að ákvað að ég mætti sko ekki djóka í einhverri ókunnugri stelpu að hún ætti að hössla sér eitthvað girnilegt (benti óvart á kærasta VINKONU hennar) og það var bara "sko, labbaðu í burtu áður en þú verða barin! ef þú vilt ekki slasast þá mundi ég koma mér í burtu strax því að ég ER gella með attitjút" svo reyndar þegar hún sá hvað ég var ekki að nenna að rífast þá gafst hún upp ( GEÐVEIKT FÚL ) og sagði ég mundi sleppa héðan lifandi ef ég mundi sko byðjast afsökunar við strákinn ... sem bye the way var orðinn svo rauður af skömm ("djí ég þekki hana EKKI") að hann var svoooo glaður að taka í höndina á mér :D svo hlupum ég og kata í burtu ÆPANDI af hlátri! mánudagur: dagur þynnku og viðbjóðs, dagur tiltektar! oj! við rétt náðum að trooooða öllu dwaslinu í bílinn hennar kötu og setja saman fjandans tjaldið (bara einu sinni*hah*) í RIGNINGU! og svo var bara rúllað niðrá pizza 67 og úldast þar þangað til að herjólfur kom, gvöööö´ð ég hef sjaldan verið jafn hamingjusöm að sjá skipholt 36!!! SOOOOOOOOFFFFFFF......zzzzzzzzzzzzz..... já svo, þar sem ég er ekki búin að skrifa neitt í svo langan tíma þá verð ég líka að segja ykkur frá "YNDISLEGA" deginum mínum í dag: ég mæti í vinnuna (fyrir þá sem ekki vita þá er staðurinn ekkert alveg að standa undir sér og er satt best að segja að fara á hausinn), ég sest við tölvuna til þess að opna þau forrit sem að ég þarf að nota yfir daginn og þá kemur Helmut inn og byrjar: -ég geri ekkert annað en að hanga á msn allan daginn og vinn ekki neitt *actually er ég alltaf að tékka á verðum þegar það er ekkert að gera og þegar það er alls ekkert meira að gera þá fer ég á msn, get alveg eins gert það eins og að hanga frammi með kaffi og stara útí loftið -ég er alltaf að hringja til útlanda á kostnað fyrirtækisins *ég hringdi á fimmtudaginn í hálftíma til þýskalands og tók það SÉRSTAKLEGA fram við þau svo þau færu nú ekki að misskilja að ég væri með prepaid kort sem væri ekki einu sinni tekið af símareikningi -bíllinn minn er búinn að standa of lengi fyrir framan *ehh... svo áður en ég náði að svara, sagði hann að ég gæti bara strax farið því ég væri rekin og labbaði í burtu (svo ég næði nú örugglega ekki að svara fyrir mig .. aftur .. ) þannig að ég bara pakkaði saman og þá kom nefnilega konan hans inn (hún er sko yndi) og skildi hvorki upp né niður í neinu af hverju ég væri að fara, ég útskýrði það fyrir henni og hún actually sagði mér að svona væri hann bara, fyrirtækið væri ekki að ganga eins vel og hann hafði vonað þannig að hann væri bara að nota mig sem blóraböggul!!! HVAÐ ER AÐ??? sko ef hann hefði bara ósköp venjulega sagt við mig, sorry við höfum ekki efni á að hafa þig lengur í vinnu, ekkert mál! og svo sko það besta, þegar ég sagði við hann að maður getur jú ekki bætt sig ef ekkert er sagt þá bara "jah þú áttir bara að vita þetta!" WTF??? ok búin í dag, þeir sem actually nenntu að lesa þetta, þá byðst ég afsökunar ef þið eruð komin með hausverk og lesblindu af öllu þessu ;) luv yall :) a RED production by ME!!! at miðvikudagur, ágúst 04, 2004 0 comments |